01

Stærðir

Atvinnubil, stærðir ​frá 108,6 m2 -124,9 m2 með ca 40 m2 millilofti. Hvert bil er með innkeyrsluhurð 4 x 4.2m.

02

Umhverfið

Lóð er 7000 m2, afgirt og malbikuð.  Bílastæði máluð. Sérafnot af völdum stæðum í boði. Fjarstýrt rafmagnshlið.  

03

Byggingin

Húsið er 1800 m2,  vélslípuð plata, 2 x 11 bil, milliveggir samlokueiningar, þakvirki með límtrésbitum. 

04

Hafa samband

Byggingarstjóri er Eyþór Á. Eiríksson, s: 776 1000.
Söludeild, s: 869 1677, Sigurður Jakob Helgason.

Við byggjum á reynslunni

Byggingarstjórn og fagaðilar sem standa að byggingum í 
Desjamýri 11 og 13 hafa áratuga reynslu í byggingageiranum.   
Hér fyrir neðan eru krækjur á teikningar og skilalýsingu. 

TEIKNINGAR SKILALÝSING

Frábær staðsetning

Staðsetningin er tilvalin fyrir ýmiskonar smáiðnað og þjónustufyrirtæki sem þurfa gott aðgengi og bílastæði. Mosfellsbær stefnir á öfluga uppbyggingu atvinnusvæðis í bæjarfélaginu en Mosfellsbær er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum mun fjölga hlutfallslega mest á næstu árum.
Hröð uppbygging kallar á meiri og fjölbreyttari þjónustu og því höfum við ráðist í þessa framkvæmd. Desjamýri er í góðum tengslum við vegakerfið enda nálægt Vesturlandsvegi og um leið nálægt þjónustu- og verslunarkjarna Mosfellsbæjar. Þaðan er ennfremur stutt í náttúruperlur og gróin útivistarsvæði.


Fyrirspurn...

    Takk! Við höfum samband um hæl...
    Vúps..., eitthvað er ekki rétt. Kannski er það netfangið? Prófaðu aftur.